Mig hlakkar svo til...
Jæja ég held að það sé kominn tími á smá færslu...
Dagar mínir eru taldir í stærsta gróðurhúsi á landinu en þann 17. des nákvæmlega mun útskrift fara fram þar sem verður útskrifaður þessi fjallmyndarlegi hópur af þessum príðisnemendum og ég er einn af þeim :) Já og það er ekki nema 2 dagar eftir í þessum skóla EVER.... Múhahahah
En ég veit ekkert hvað ég á að fara að gera eftir áramót en ef þið hafið einhverja lausn aðra en fristihús í Þolló þá endilega látið mig vita.
Stórdagur á morgun en þá min loks renna sá dagur upp sem ég er búin að vera að bíða eftir síðan ég var lítið busakríli, og mér finnst eins og það hafi verið í gær :) Já ég er auðvitað að tala um dimmiteringuna ... Hvað annað ? En já þið hljótið að spyrja ykkur og mig hvað ég er að gera á fótum kl. 23.30 þegar ég er að fara að vakna kl. 6 og byrja að skella í mig bjór ?? Svarið er að ég er nývöknuð... eða lítið sofnuð. Ég fór semsagt upp í rúm kl. 9.30 en er búin að vera vakin 3 sinnum. 2 sinnum hringsi síminn og svo þegar Stebbi kom heim... Og nú get ég ekki sofnað aftur ARRGGG :) En við attluðum að mæta heim til Svansý kl. 6 en þá er gellan bara orðin veik þannig að Valla attlar bara að koma til mín og við attlum að finna okkur til og svona áður en við förum út í sel :) Vá hvað mig hlakkar til :)
En ég er að hugsa um að fara að leggja höfuð mitt á kodda til þess að ég geti vaknað á morgun....
P.s. Elsku Ragna mín ég biðst velvirðingar að hafa platað þig í dag... Við verðum ekki mörgæsir, góð hugmynd samt :) Lov jú ;)
Mig hlakkar svo til, mig hlakkar alltaf svo til....
Sjáumst fólk blindbeygluð og eiturhress in skúl tú morróv morníng :) Lov jú all... !!!
Ausan kveður í bili....

