5a8 Cursor by www.Soup-Faerie.Com

Ausan

15.11.04

Jæja er ekki kominn tími á nokkur orð hér inni ? Jú ég held það bara. Var einhvað að pæla í því áðan hvað er ógeðslega langt síðan ég setti myndir inn á þessa blessuðu síðu og fattaði þá að ég er orðin svo steingeld að það er mánuður síðan ég djammaði seinast. Var semsagt alveg súper úper róleg um helgina, fór að hjálpa mömmu og pabba að flytja á föstudaginn og svo beint til Tótu, fór þaðan 1:30 og steinrotaðist um leið og ég kom heim eða um 2 leytið og svaf alveg til 14:30. Fór þá að hanga í leti en átti að vera að læra :( Fór svo að vinna kl. 6 og það var bara svaka fínt sko, kom heim um hálf 2 og attlaði til Karenar og Lindu þá en ég náði ekki í Kareni og steinrotaðist í sófanum og fór svo bara að sofa og enn og aftur svaf ég til já 3. Þvílík uppsöfnuð þreyta hjá mér því ég er sko ekki vön að sofa svona mikið. Lærði svo og lærði í gær þangað til Sigga og Haukur komu í mat og spjall til okkar. Svaka næs helgi sosem.

Er svo að fara að vinna í kvöld en núna á bara að taka á því og reyna að eignast einhverja peninga...


 
& 495 lt;/div>