Góðan daginn! Ég er orðin ekkert smá löt að skrifa hérna inn, en annars er ekkert svo mikið að frétta af mér. Bara byrjuð að vinna á Hótel Selfoss og það er mjög fínt, enþá soldið stressuð en þetta kemur allt, vona ég alla vega. Svo er ég líka búin að fara á fullt af stöðum og sækja um vinnu eftir áramót en það er ekkert að ganga allt of vel alla vega. Samt allir voða næs og taka alveg við umsóknum og svona en það vantar víst bara ekki neitt, eða alla vega ekki á þessum stöðum sem ég er búin að sækja um á. En ég er nú samt ekki búin að fá nein neikvæð svör þannig að maður á kannski bara að hætta þessari svartsýni og líta á björtu hliðarnar. Ætla að halda áfram að leyta einhvað eftir helgi. Fór svo í höfnina í gær og var það í fyrsta skipti sem að ég fór heim í Básahraunið eftir að það var flutt inn. Svaka fínt barasta finnst mér. Svo er skólavikan mín bara búin en það var einhver íþróttadagur í dag út í skóla þannig að maður komst bara snemma heim. Fæ svo frí á morgun og föstudaginn því ég er að fara austur snemma í fyrramálið eða í nótt. Er ekki beint spennt fyrir 10 tíma bílferð með systrum mínum en maður lætur sig nú hafa það. En það er verið að fara að jarða hann langafa á föstudaginn og ég verð örugglega komin aftur heim á laugardaginn. Þetta á ekki eftir að vera auðveld helgi!
Annars styttist óðfluga í dimmiteringu og útskrift en dimmiteringin er eftir 9 daga, hvorki meira né minna og ég er ekki frá því að það sé kominn þó nokkur spenningur í mann. Heyrði aðeins í Maríu Rún í gær en hún er að skipuleggja óvissuferðina og það er víst allt komið á hreint og þetta verður víst svaka flott. En ég veit ekki hvað við gerum enda er þetta óvissuferð og ég er að deyja úr spenningi. Svo er það náttúrulega bara útskriftin þann 17. des og skipa ég hér með öllum sem telja sig þekkja mig einhvað af ráði að taka þann dag frá því það verður haldið heljarinnar partý í Kívó í Þorlákshöfn, þar sem ég, Valdís og Guðni munum bjóða öllu skemmtilegu fólki í veislu. Ég verð líka með veislu fyrir familíuna um daginn eða samt sona seinni partinn því útskriftin á örugglega eftir að taka einhvern tíma þar sem við erum soldið mörg held ég.
En ég attla að fara og fá mér síðdegisblund...
17.11.04
|
<< Heim

