5a8 Cursor by www.Soup-Faerie.Com

Ausan

29.11.04

Hvað haldiði ?

Jæja elskurnar mínar ég er enn og aftur komin með nýtt blogg þannig að endilega kíkið á það...
Þeir sem eru með mig í link væru mjög vinsælir ef þeir myndu breyta honum líka :)

Thanks....

Kíkið á nýju síðuna, fer að fara að setja inn myndir síðan á dimmiteringunni....

http://blog.central.is/audurg

25.11.04

Mig hlakkar svo til...

Jæja ég held að það sé kominn tími á smá færslu...


Dagar mínir eru taldir í stærsta gróðurhúsi á landinu en þann 17. des nákvæmlega mun útskrift fara fram þar sem verður útskrifaður þessi fjallmyndarlegi hópur af þessum príðisnemendum og ég er einn af þeim :) Já og það er ekki nema 2 dagar eftir í þessum skóla EVER.... Múhahahah


En ég veit ekkert hvað ég á að fara að gera eftir áramót en ef þið hafið einhverja lausn aðra en fristihús í Þolló þá endilega látið mig vita.


Stórdagur á morgun en þá min loks renna sá dagur upp sem ég er búin að vera að bíða eftir síðan ég var lítið busakríli, og mér finnst eins og það hafi verið í gær :) Já ég er auðvitað að tala um dimmiteringuna ... Hvað annað ? En já þið hljótið að spyrja ykkur og mig hvað ég er að gera á fótum kl. 23.30 þegar ég er að fara að vakna kl. 6 og byrja að skella í mig bjór ?? Svarið er að ég er nývöknuð... eða lítið sofnuð. Ég fór semsagt upp í rúm kl. 9.30 en er búin að vera vakin 3 sinnum. 2 sinnum hringsi síminn og svo þegar Stebbi kom heim... Og nú get ég ekki sofnað aftur ARRGGG :) En við attluðum að mæta heim til Svansý kl. 6 en þá er gellan bara orðin veik þannig að Valla attlar bara að koma til mín og við attlum að finna okkur til og svona áður en við förum út í sel :) Vá hvað mig hlakkar til :)


En ég er að hugsa um að fara að leggja höfuð mitt á kodda til þess að ég geti vaknað á morgun....


P.s. Elsku Ragna mín ég biðst velvirðingar að hafa platað þig í dag... Við verðum ekki mörgæsir, góð hugmynd samt :) Lov jú ;)


Mig hlakkar svo til, mig hlakkar alltaf svo til....


Sjáumst fólk blindbeygluð og eiturhress in skúl tú morróv morníng :) Lov jú all... !!!


Ausan kveður í bili....

20.11.04

Home sweet home

Ætlaði bara að láta vita að ég er mætt á Suðurlandsundirlendið....

17.11.04

Góðan daginn! Ég er orðin ekkert smá löt að skrifa hérna inn, en annars er ekkert svo mikið að frétta af mér. Bara byrjuð að vinna á Hótel Selfoss og það er mjög fínt, enþá soldið stressuð en þetta kemur allt, vona ég alla vega. Svo er ég líka búin að fara á fullt af stöðum og sækja um vinnu eftir áramót en það er ekkert að ganga allt of vel alla vega. Samt allir voða næs og taka alveg við umsóknum og svona en það vantar víst bara ekki neitt, eða alla vega ekki á þessum stöðum sem ég er búin að sækja um á. En ég er nú samt ekki búin að fá nein neikvæð svör þannig að maður á kannski bara að hætta þessari svartsýni og líta á björtu hliðarnar. Ætla að halda áfram að leyta einhvað eftir helgi. Fór svo í höfnina í gær og var það í fyrsta skipti sem að ég fór heim í Básahraunið eftir að það var flutt inn. Svaka fínt barasta finnst mér. Svo er skólavikan mín bara búin en það var einhver íþróttadagur í dag út í skóla þannig að maður komst bara snemma heim. Fæ svo frí á morgun og föstudaginn því ég er að fara austur snemma í fyrramálið eða í nótt. Er ekki beint spennt fyrir 10 tíma bílferð með systrum mínum en maður lætur sig nú hafa það. En það er verið að fara að jarða hann langafa á föstudaginn og ég verð örugglega komin aftur heim á laugardaginn. Þetta á ekki eftir að vera auðveld helgi!


Annars styttist óðfluga í dimmiteringu og útskrift en dimmiteringin er eftir 9 daga, hvorki meira né minna og ég er ekki frá því að það sé kominn þó nokkur spenningur í mann. Heyrði aðeins í Maríu Rún í gær en hún er að skipuleggja óvissuferðina og það er víst allt komið á hreint og þetta verður víst svaka flott. En ég veit ekki hvað við gerum enda er þetta óvissuferð og ég er að deyja úr spenningi. Svo er það náttúrulega bara útskriftin þann 17. des og skipa ég hér með öllum sem telja sig þekkja mig einhvað af ráði að taka þann dag frá því það verður haldið heljarinnar partý í Kívó í Þorlákshöfn, þar sem ég, Valdís og Guðni munum bjóða öllu skemmtilegu fólki í veislu. Ég verð líka með veislu fyrir familíuna um daginn eða samt sona seinni partinn því útskriftin á örugglega eftir að taka einhvern tíma þar sem við erum soldið mörg held ég.


En ég attla að fara og fá mér síðdegisblund...

15.11.04

Jæja er ekki kominn tími á nokkur orð hér inni ? Jú ég held það bara. Var einhvað að pæla í því áðan hvað er ógeðslega langt síðan ég setti myndir inn á þessa blessuðu síðu og fattaði þá að ég er orðin svo steingeld að það er mánuður síðan ég djammaði seinast. Var semsagt alveg súper úper róleg um helgina, fór að hjálpa mömmu og pabba að flytja á föstudaginn og svo beint til Tótu, fór þaðan 1:30 og steinrotaðist um leið og ég kom heim eða um 2 leytið og svaf alveg til 14:30. Fór þá að hanga í leti en átti að vera að læra :( Fór svo að vinna kl. 6 og það var bara svaka fínt sko, kom heim um hálf 2 og attlaði til Karenar og Lindu þá en ég náði ekki í Kareni og steinrotaðist í sófanum og fór svo bara að sofa og enn og aftur svaf ég til já 3. Þvílík uppsöfnuð þreyta hjá mér því ég er sko ekki vön að sofa svona mikið. Lærði svo og lærði í gær þangað til Sigga og Haukur komu í mat og spjall til okkar. Svaka næs helgi sosem.

Er svo að fara að vinna í kvöld en núna á bara að taka á því og reyna að eignast einhverja peninga...

11.11.04

Góðan og blessaðann !

Jæja þá erum við flutt inn í litlu bílskúrsíbúðina í Nauthólum 5. Þetta er ekkert það lítið eða ekki eins lítið og ég hélt þegar allt dótið er komið inn. Svo er mín líka komin með vinnu en ég byrja á laugardaginn k. 6 á Hótel Selfoss sem verður eflaust fínt.
Svo er helgin framundan og eins og alltaf alveg nóg að gera, á föstufaginn þá er kuntusamfundur hjá henni Tótu litlu en mér skilst að megininntak þeirrar samkomu sé að éta og þá meina ég éta mikið, fara í heitapottinn, glápa á Idol og drekka bjór. En eins og vanalega þessa dagana þá ætla ég ekki að drekka... Bæði vegna peningaleysis og svo þarf ég líka að gera svo ógeðslega mikið um helgina að ég myndi aldrei afreka það ef ég yrði eitthvað þunn. Já á föstudaginn er ég svo líka að fara að hjálpa mömmu og pabba að flytja en þau voru að kaupa nýtt hús og er það statt í Básahrauni 10, bara aftur komin í Hraunið en fyrir þá sem ekki vita þá bjó ég þar í æsku, en þá var það samt númer 34 :) Já ég er semsagt að fara að standa í flurningum enn eina ferðina en ég er komin með svo drullutussu nóg af því að flytja að þið getir ekki ýmindað ykkur það, á ennþá eftir að taka upp úr fullt af kössum hérna á Selfossi :( En mamma og pabbi eru búin að vera svo ýkt dugleg við það að hjálpa okkur í þessu flutningaveseni að það kemur bara ekkert annað til greina en að hjálpa þeim ;) Svo á ég nú líka eftir að sjá þetta blessaða hús sem þau voru að kaupa. Svo á Laugardaginn ætla ég vonandi að fá að sofa einhvað aðeins út en ég veit ekki hvort mér verður að þeirri ósk þar sem ég þarf líklegast að hjálpa m&p að koma sér fyrir eitthvað og jafnvel vera rosalega obboslega dúleg að skrifa ritgerð í vistfræði sem er alveg dead boring... Svo fer ég að vinna kl 6 til ég veit ekki hvað. Karen og Linda eru svo að halda upp á afmælið sitt í menningarpleisinu Eyrarbakka á laugardagskvöldið en ég kemst örugglega ekki því ég veit ekkert hvað ég er að vinna lengi. En ef ég verð ekki að vinna mjög lengi þá kíki ég örugglega eitthvað þangað en edrú að sjálfsögðu :) Á sunnudaginn ætla ég svo pottþétt að sofa út. Ætla svo líka að fara og hitta systur mínar sætu og Möggu frænku og við ætlum að skrifa nokkur falleg orð um hann Magga afa okkar sem var að deyja. Svo þarf ég líka að læra undir próf og klára ritgerð og nóg að gera. Þannig að helgin er stútfull hjá mér. Svo ætla Sigga og Haukur kannski að kíkja á okkur á sunnudaginn eða alla vega Sigga þannig að ég þarf að þrífa og skrúbba allt og vesen, hehe nei það er nú reyndar alveg óþarfi :)
En þetta er nú komið gott og ég er farin að rífa meira upp úr kössum.

9.11.04

Loksins er maður kominn með tölvuna í skólann og kemst því á netið!


Fékk sorgarfréttir í gær en hann elskulegur langafi minn Magnús Sigurðsson lést í gærmorgun. Hann var orðinn frekar gamall og lúinn og orðin soldið veikur. Samt alltaf erfitt að heyra eitthvað svona. En hans verður sárt saknað og mjög mikið til af góðum minningum þar sem þetta var einn besti karl sem ég þekki. Fórum alltaf til hans á hverju sumri en hann bjó í Löndum sem er rétt fyrir utan Stöðvarfjörð. Hann var alltaf til í að segja manni sögur og spjalla við mann og hafði mikið gaman af okkur krökkunum. Hann lumaði nú líka mjög oft á einhverju gotteríi inn í búri en ef það var ekki til þá var bara farið með okkur krakkana í Kaupfélagið á Stöðvarfirði og keypt ís :) En svona er lífið víst bara og það er ekkert annað að gera en að taka því ... Blessuð sé minning hans!


 
& 495 lt;/div>